Algengar spurningar
Rannsakar Matís heilnæmi neysluvatns?
Já! Örverudeild Matís ohf rannsakar hvort neysluvatn sé heilnæmt. Yfirleitt er heildargerlafjöldi kólígerla og E.coli við 22°C rannsakaður. Einnig er möguleiki að fá eðlismælingar á vatninu eins og sýrustig og leiðni.
Tengiliður: Hrólfur Sigurðsson
Hvað tekur langan tíma að láta rannsaka heilnæmi neysluvatns?
Það tekur 3 daga að rannsaka heilnæmi neysluvatns.
Tengiliður: Hrólfur Sigurðsson
Þarf ég að taka neysluvatnssýni í sérstakt sýnatökuglas?
Já, það er nauðsynlegt að sýnið sé tekið í sterilt sýnatökuglas. Slíkt glas má fá hjá Örverudeild Matís ohf eða kaupa tvö sterill þvagprufuglös í næsta apóteki.
Tengiliður: Hrólfur Sigurðsson
Framkvæmið þið prófun á autoklövum fyrir snyrtistofur og tannlæknastofur?
Já, það er hægt að panta sérstök bakteríu gró sem við sendum til viðskiptavina. Viðskiptavinurinn setur þessi gró í autoklavann sinn og sendir þau síðan aftur til okkar. Við staðfestum hvort þeirra autoklavi hafi náð að drepa viðkomandi gró.
Tengiliður: Páll Steinþórsson
Selur Matís ohf ræktunarskálar fyrir bakteríur og myglu?
Já, við framleiðum mikinn fjölda af ræktunarskálum og seljum til viðskiptavina ef þeir óska eftir því.
Tengiliður: Páll Steinþórsson