Námskeið Matís

Námskeið Matís

Matís er stærsta rannsóknafyrirtæki landsins á sviði matvælarannsókna og býður upp á vönduð og hagnýt námskeð fyrir fyrirtæki og einstaklinga. Starfsfólk Matís hefur áralanga reynslu af rannsóknum á matvælum, því er þekking og reynsla á þessu sviði meginstyrkur fyrirtækisins. Matís leggur ríka áherslu á að miðla þessari þekkingu til matvælaiðnaðar á Íslandi. 

Boðið er upp á vönduð og hagnýt námskeið fyrir fyrirtæki og einstaklinga. Vinsamlegsta hafið samband og leitið tilboða í námskeið hjá Matís.

Umsjón með námskeiðum hafa Margeir Gissurarson og Óli Þór Hilmarsson.

Matís býður einnig upp á nokkur vefnámskeið.

Hér fyrir neðan finnur þú hluta af þeim námskeiðum sem Matís býður upp á. Matís tekur ávallt mið af aðstæðum viðkomandi fyrirtækis, s.s. tegund vinnslu, fjölda starfsfólks o.s.frv.

Ertu með hugmynd að námskeiði?

Ef þú ert með hugmynd að námskeiði, hvort sem það er fyrir smærri eða stærri hópa, þá hvetjum við þig til að senda okkur tölvupóst. Netfangið er namskeid@matis.is.