Efnamælingar
Mikilvæg áhersluefni í efnamælingunum (varnarefnamælingar, næringargildi o.s.frv.) eru samsetning hráefnis og afurða í matvælavinnslu og fóðurgerð og þær breytingar á gæðum þeirra og öryggi sem verða við vinnslu og geymslu t.d. næringargildi, geymsluþol og stöðugleiki.
Fjölmargar efnamælingar eru framkvæmdar hjá Matís sem þjónusta við viðskiptavini, þær algengustu eru:
- Almennar efnamælingar (prótein, fita, salt,vatn, aska o.fl.).
Matís hefur faggildingu frá Swedac, sænsku faggildingastofunni á 12 almennum efnamælingum. - Gæðamælingar á fiski og fiskafurðum (TVN, Totox, rótamín og fl.).
- Mælingar á stein- og snefilefnum. Tengiliður: Natasa Desnica
Stein- og snefilefni eru mæld í matvælum, fóðri og umhverfissýnum. Matís hefur faggildingu frá Swedac, sænsku faggildingastofunni á aðferð fyrir 9 málma í fiski og fiskiolíu, kjöti og mjólk. - Varnaefnamælingar. Tengiliður: Eydís Ylfa Erlendsdóttir
Hjá Matís eru framkvæmdar varnarefnamælingar í ávöxtum, grænmeti og kornvöru, mælingarnar eru faggildar frá Swedac, sænsku faggildingastofunni. Hjá Matís eru greind 192 varnarefni. Varnarefnum er oftast skipt í 4 flokka skordýraeitur, illgresiseyða, sveppalyf og stýriefni, en það eru efni sem stjórna vexti plantna. - Næringargildi fyrir merkingar.
Matís getur aðstoðað þig við að útbúa næringaryfirlýsingu (áður kölluð næringargildismerking). Við ráðleggjum þér hvaða efni þarf að mæla og hvernig standa skuli að sýnatöku. Ef mögulegt er að reikna út næringargildið þá tökum við það að okkur. - Hægt er að fá nánari upplýsingar um merkingar matvæla á vefsíðu Matís hér: Umbúðamerkingar – Matís (matis.is)
- ÍSGEM gagnagrunnurinn getur nýst við merkingar matvæla. Upplýsingar um gagnagrunninn og leit í honum má nálgast hér: ÍSGEM
Listi yfir faggildar aðferðir í Matís í Reykjavík
| Efni | Heimild | Matrixur |
|---|---|---|
| Fita | AOCS Ba-3-38/Tecator no AN 301 | Fiskur og skelfiskur, Fóður |
| Salt (NaCl) | AOAC 17th ed 2000 no 976.18/AOAC 937.09 2000 | Fiskur og skelfiskur, Fóður |
| Prótein | ISO 5983-1:2005 | Fiskur og skelfiskur, Fóður |
| ISO 5983-2:2009 | Fiskur og skelfiskur, Fóður | |
| Vatn | ISO 6496 1999 | Fiskur og skelfiskur, Fóður |
| Aska | ISO 5984-2022 | Fiskur og skelfiskur, Fóður |
| TVB-N | AOAC, 19th ed. 2012. No. 920.03 | Fiskur og skelfiskur, Fóður |
| Protein Dumas | ISO 16634-1:2008E | Fiskur, Fóður |
| Histamine,Cadaverine | §35 LMBG L 10.00-5, HPLC (1999-11); NMKL Method 200 | Fiskur og skelfiskur, Fóður |
| PFAS | EURL dSPE | Fiskur og skelfiskur, Kjöt og egg, Fóður |
| Málmagreining með ICP-MS | NMKL method 186, 2007, mod. | Fiskur og skelfiskur, Kjöt og egg, Mjólk, Fóður, Þang |
| Fitusýrugreining með GC-FID | Can. J. Biochem. and Physiol. 37, 911/AOCS Official Method Ce 1b-89 | Fiskur |
| Varnarefni | SANTE 11312/v2026; EN 15662:2018 multimethod | Ávextir og grænmeti, Drykkir |
