Námskeið um eftirlit og forvarnir gegn Legionella bakteríu

Hrólfur Sigurðsson

Sérfræðingur

hrolfur@matis.is

Á dögunum hélt Hrólfur Sigurðsson, teymisstjóri hjá örverudeild Matís, stutt og hnitmiðað námskeið um eftirlit og forvarnir gegn Legionella bakteríunni. Námskeiðið var sérstaklega ætlað hótelstarfsfólki hér á landi og fjallaði um helstu áhættuþætti sem tengjast bakteríunni, hvernig hún fjölgar sér í vatnskerfum og hvaða aðgerðir draga úr líkum á smiti.

Þátttakendur fengu fræðslu um mikilvægi réttra hitastillinga á heitu vatni, reglubundins viðhalds á sturtuhausum og krönum og hvernig forðast má dauða enda í lagnakerfum. Einnig var farið yfir viðbragðsáætlanir ef Legionella greinist, þar á meðal hitun og skolun vatnskerfa og aðrar viðurkenndar hreinsunaraðferðir.

Námskeiðið var vel heppnað og lagði áherslu á mikilvægi markvissra forvarna og reglulegs eftirlits til að tryggja öryggi gesta.

Legionella veldur hermannaveiki, sem er lífshættulegur lungnasjúkdómur. Á hverju ári greinast að jafnaði 2 til 10 einstaklingar með hermannaveiki hér á landi.

Skrunaðu efst