Á dögunum birtist ítarleg umfjöllun á vefmiðlinum Euronews um verkefnið Virus-X sem Matís leiðir. Myndskeið fylgir umfjölluninni og þar er meðal annars spjallað við Arnþór Ævarsson verkefnastjóra verkefnsins.
Grundvallarmarkmið VIRUS-X er að einangra erfðaefni hitakærra veira beint úr náttúrulegum sýnum. Það er gert til að raðgreina erfðamengi þeirra, bera kennsl á áhugaverð gen og framleiða viðkomandi genaafurðir, fyrst og fremst ensím, til frekari skoðunar og hagnýtingar.