Hjá Matís eru stundaðar ýmsar rannsóknir sem flestar snúast um matvæli á einhvern hátt. Okkur vantar fólk til að leggja okkur lið í þessum rannsóknum.
Þátttaka getur t.d. falist í:
- Rýnihópavinnu þar sem rætt er um matartengd málefni eða vörur sem eru í þróun.
- Könnunum þar sem þátttakendur meta vörur heima.
- Viðhorfskönnunum um matartengd málefni á netinu.
- Könnunum eða mati á vöru í húsnæði Matís að Vínlandsleið 12.
Fyrir hverja rannsókn verða þátttakendur valdir af póstlistanum og þeim boðið að taka þátt. Þátttakendur í stærri verkefnum fá umbun í formi smárra gjafa, gjafabréfs, eða þátttöku í happdrætti.
Þátttakandi á póstlista getur hvenær sem er óskað eftir því að upplýsingar um viðkomandi verði fjarlægðar af listanum.
Eftirfarandi þættir eiga við um allar rannsóknir Matís:
- Þátttakendur njóta fyllsta trúnaðar.
- Nöfn þátttakenda koma hvergi fram birtingum niðurstaða.
- Þátttakendum er alltaf í sjálfsvald sett hvort þeir taka þátt í viðkomandi rannsókn.
- Unnið verður með öll gögn í samræmi við persónuverndarlög.
Skráning á neytendalista Matís fer fram hér.