Mælingar og þjónusta

Efnamælingar

Fjölmargar efnamælingar eru framkvæmdar hjá Matís, má þar nefna almennar efnamælingar, gæðamælingar, mælingar á stein- og snefilefnum, varnarefnamælingar o.fl.

Örverumælingar

Hjá Matís eru stundaðar örverurannsóknir á matvælum, neysluvatni, lyfjum, fóðri og umhverfissýnum. Ásamt því veitum við sérhæfða þjónustu og ráðgjöf.

Erfðagreiningar

Við bjóðum upp á erfðagreiningar á nytjastofnum, búfé og matvælum, úrvinnslu gagna og raðgreiningar á erfðaefnum lífvera.

Skynmat

Skynmat er kerfisbundið mat á lykt, bragði, útliti og áferð matvæla. Í skynmati eru skynfæri mannsins, þ.e. sjón-, lyktar-, bragð-, heyrnar- og snertiskyn notuð til að meta gæði matvæla.

Umhverfis- og loftgæðamælingar

Umhverfis- og loftgæðahópur Matís bíður upp á þjónustu í tengslum við Umhverfisvöktun og starfsleyfismælingar fyrir iðnað á Íslandi.

Ráðgjöf fyrir matvæla-framleiðendur

Leiðbeiningar til að hefja framleiðslu, dreifingu og sölu. Matís leiðbeinir þér yfir fyrstu hjallana. Vandaður undirbúningur sparar þér vinnu og fyrirhöfn og eykur líkur á árangri.

Þjónustugátt Matís

Auk mælinga veitir Matís opinberum aðilum, matvælafyrirtækjum, lyfjafyrirtækjum, sláturhúsum og einkaaðilum ráðgjöf í tengslum við mælingar.
Matís hefur milligöngu um að senda sýni í mælingar til erlendra rannsóknastofa í þeim tilfellum þegar Matís býður ekki upp á þær.

Matís hefur faggildingu fyrir langflestar af þeim aðferðum sem notaðar eru. Faggilding er opinber gæðavottun sem sem segir til um hvort kröfum ISO 17025 staðalsins sé framfylgt.

Starfsfólk rannsóknastofu Matís leitast við að veita þjónustu af fullnægjandi gæðum og í samræmi við þarfir viðskiptavina til þess að ekki leiki vafi á að rannsóknaniðurstöður séu áreiðanlegar, réttar og óhlutdrægar og að þær nýtist viðskiptavinum.

Opnunartími þjónustumælinga er frá 8:30 til 16:00.

Scroll to Top