Ársskýrsla Matís fyrir árið 2020 er nú aðgengileg.
Árið 2020 var fullt af áskorunum í starfsemi Matís eins og annarra fyrirtækja en þó er óhætt að segja að ýmsum stórum og mikilvægum áföngum hafi veirð náð.
Í ársskýrlunni er dregin upp mynd af starfseminni sem auk hefð- og lögbundins reksturs fólst í því að finna leiðir til að viðhalda og víkka út starf fyrirtækisins við nýjar og krefjandi aðstæður.
Skýrslunni er skipt upp í eftirfarandi kafla og hana má skoða í heild sinni með því að smella hér.
- Ávarp stjórnarformanns
- Ávarp forstjóra
- Hlutverk og rekstur Matís
- Víðtækt samstarf
- Verðmætasköpun, lýðheilsa og matvælaöryggi
- Rannsókna- og nýsköpunarverkefni
- Þjónustumælingar
- Matarsmiðja, ráðgjöf, fræðsla og þjálfun
- Stuðningur við stjórnvöld og nefndarstörf
- Öryggis- og forgangsþjónusta á sviði matvæla
- Vöktun á óæskilegum efnum í sjávarfangi
- Matís um land allt
- Rannsóknasamstarf við menntastofnanir