Að vera vel nærður er mikilvægt fyrir líkamlega- og andlega heilsu. Vannæring er algeng meðal eldri einstaklinga sem koma inn á spítala. Eftir útskrift af spítala eru þessir einstaklingar ennþá í slæmu næringarástandi.
Markmið verkefnisins var að þróa lystugar og bragðgóðar vörur sem bæta næringarástand eldri einstaklinga. Áhersla var lögð á að þróa vörur með mjúka áferð vegna tyggingar- og kyngingarörðugleika, sem einnig voru orkuþéttar og próteinríkar og jafnframt auðveldar í meðhöndlun með tilliti til minni hreyfigetu og vöðvastyrks.
Hvar: Læknagarður, Vatnsmýrarvegi 16, 101 Reykjavík
Hvenær: Föstudaginn 18. maí kl. 15.30 -16.15
Leiðbeinendur: Kolbrún Sveinsdóttir, Matís og Guðjón Þorkelsson, Matís, HÍ
Prófdómari: Ingibjörg Gunnarsdóttir, HÍ
Prófstjóri: Ólöf Guðrún Geirsdóttir, HÍ