Strandbúnaður 2018 er ráðstefna um fiskeldi, skeldýra- og þörungarækt. Ráðstefnan verður haldin á Grand Hótel Reykjavík, 19.-20. mars.
Dagskrá ráðstefnunnar má finna í tengli hér að neðan en dagskránni er skipt upp í fjölda málstofa:
- Siðferði, velferð og umhverfi
 - Heilbrigði í Strandbúnaði – verk og vitundarvakning
 - Nýting smáþörunga – bylting í framleiðslu lífrænna efna
 - Örlög íslenskrar skelræktar – í ljósi samkeppni við lifandi innflutta skel
 - Landeldi á laxi
 - Uppskeruhátíð rannsókna
 - Laxalús – „upprennandi“ vandamál?
 - Eldi er meira en lax
 - Fræðandi kynningar þjónustuaðila – Á landi
 - Fræðandi kynningar þjónustuaðila – Í sjó
 
Dagskráin er fjölbreytt í þessum 10 málstofum og eru erindin samtals um 60.
