Í síðastliðinni viku var viðtal við Ásthildi Björgvinsdóttur en fyrirtækið hennar, Ástrík, www.astrik.is, framleiðir popp meðal annars með karamellu og sjávarsalti. Í lok viðtalsins talaði Ásthildur eilítið um Matís og sagði að fyrirtækið væri „snilld“.
Eftir þetta viðtal varð eiginlega allt vitlaust hjá Matís í fyrirspurnum um hvernig fyrirtækið getur aðstoðað frumkvöðla og smærri fyrirtæki við að koma matarhugmyndum á framleiðslustig eða koma minni framreiðslu í stærri einingar til sölu hér á landi og erlendis.
En hvernig getur Matís hjálpað?
Eins og Ásthildur orðaði það þá er Matís snilldar fyrirtæki sem gefur aðilum kleift að nota löglega og vottaða aðstöðu, hjálpar í þessum málum til að byrja með og kemur með ábendingar og býður fram aðstoð.
Við ætlum ekki að mótmæla þessum orðum! 🙂
Viltu vita meira um hvernig Matís getur hjálpað? Kíktu þá að þessa síðu okkar, www.matarsmidjan.is.
Nánari upplýsingar veitir Óli Þór Hilmarsson hjá Matís.
Viðtalið við Ásthildi má finna á vefsíðu Bylgjunnar, www.bylgjan.is.