Matís hefur nú búið til sérstakt smáforrit (app) fyrir snjallsíma og spjaldtölvur sem gerir sjómönnum auðvelt að reikna út ísþörf vegna afla.
Smáforritið er einkar hentugt og auðvelt í notkun og nýtist sjómönnum til að reikna út hversu mikil ísþörfin er fyrir þann afla sem veiddur er. Í forritinu er tekið tillit til aðstæðna eins og sjávarhita, lofthita og dagar á sjó og leiðbeiningar varðandi kg magn af ís gefnar út auk þess í fjölda skófla og fjölda fata.
Nú hefur aldrei verið auðveldara að finna út hversu mikið af ís þarf til að fara sem best með okkar dýrmæta hráefni.
Forritið má nálgast á vefnum, í iTunes Store, í Windows Store og á Google Play (Android) eða með því að skanna QR kóðana hér að neðan. Forritið er aðgengilegt fyrir öll stærstu stýrikerfi farsíma.
Google Play Windows Store iTunes Store
Ítarefni
- Frétt Viðskiptablaðsins um nýja ísreikninn (myndband).