Fréttir

Aukið matvælaöryggi á Íslandi

Þjónustuflokkur:

Aðrir þjónustuflokkar

Samstarfsverkefni íslenskra og þýskra stjórnvalda um aukið öryggi matvæla er nú lokið. Matvælaöryggi er lykilforsenda þess að matvælaframleiðendur geti selt sína vöru og tekið þátt í alþjóðaviðskiptum.

Neytendur, innlendir sem erlendir, verða að geta treyst því að matvæli séu örugg og að stjórnvöld hafi getu til að fylgjast með því að matvælaöryggis sé gætt í samræmi við alþjóðlega staðla og reglugerðir.

Tvíhliða samstarfsverkefni Þýskalands og Íslands, Örugg matvæli, sem stuðlað hefur að auknu matvælaöryggi á Íslandi er nú lokið, en helstu þátttakendur verkefnisins voru Matís, Matvælastofnun (MAST), Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið, German Federal Ministry of Food and Agriculture (BMEL), Federal Institute for Risk Assessment (BfR) og Lower Saxony State Office for Consumer Protection and Food Safety (LAVES) í Þýskalandi.

“Markmið okkar var byggja upp stjórnsýsluna og bæta rannsóknaaðstöðu á Íslandi þannig að allir nauðsynlegir innviðir séu til staðar til að tryggja öryggi matvæla á íslenskum markaði. Þetta er gert til að vernda heilsu og hagsmuni neytenda á sífellt stækkandi mörkuðum á tímum aukinnar alþjóðavæðingar” sagði prófessor dr. dr. Andreas Hensel, forseti BfR, og undir það tók prófessor dr. Eberhard Haunhorst, forseti LAVES á fundi með Sigurði Inga Jóhannssyni sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra þann 25. júní 2014. “Samstarfsverkefnið Örugg matvæli hefur stuðlað að verulegri eflingu á rannsóknargetu Íslands, sem mun gera okkur kleift að vinna í samræmi við evrópska staðla og reglugerðir. Þessi vinna mun auðvelda útflutning á íslenskum matvælum á alþjóðamarkaði.” sagði Sveinn Margeirsson forstjóri Matís. “Þökk sé nánu samstarfi milli íslenskra yfirvalda og þýskra samstarfsaðila, hafa opinberir eftirlitsaðilar aukið þekkingu sína á löggjöf, stjórnsýslu og verklagi við opinbert matvælaeftirlit þannig að við erum nú betur í stakk búin til að tryggja hagsmuni neytenda með tilliti til matvælaöryggis”, bætti forstjóri Matvælastofnunar Jón Gíslason við.

Helstu forgangsatriði verkefnisins voru að bæta greiningu varnarefnaleifa og annarra aðskotaefna í matvælum, svo sem PCB, auk greininga á erfðabreytingum í matvælum og fóðri. Annar mikilvægur þáttur var að innleiða efnagreiningaraðferðir til að mæla þörungareitur í skelfiski. Til að ná þessum markmiðum voru keypt fyrsta flokks rannsóknartæki og sett upp á rannsóknarstofu Matís ásamt því að viðkomandi starfsfólk var þjálfað í notkun tækjanna og framkvæmd á opinberum greiningaraðferðum samkvæmt Evrópskum stöðlum. Matvælastofnun og heilbrigðiseftirlit sveitarfélaga fengu einnig þjálfun í sýnatökum, eftirliti og túlkun löggjafar á þessum sviðum. Samtals komu hingað til lands 24 sérfræðingar frá þýsku samstarfsstofnununum til að veita þessa þjálfun auk þess sem íslenskir sérfræðingar munu fara í kynnisheimsókn til Þýskalands.

Dr. Helga Gunnlaugsdóttir, fagstjóri hjá Matís, dr. Roland Gerhard Körber starfsmaður Safe Food verkefnisins, Sigurður Ingi Jóhannsson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, dr. Hrönn Ólína Jörundsdóttir, verkefnastjóri hjá Matís, Thomas Hermann Meister, sendiherra Þýskalands á Íslandi, dr. dr. Andreas Hensel, forseti BfR, dr. Eberhard Haunhors forstjóri Laves og Margrét Björk Sigurðardóttir, fagsviðsstjóri hjá Matvælastofnun.

Verkefnið þykir hafa tekist afar vel og er verið að ræða hugsanlegt framhald á því samstarfi sem komið er á milli íslenskra og þýskra stofnana á sviði matvælaöryggis.

Nánari upplýsingar veitir Helga Gunnlaugsdóttir, fagstjóri hjá Matís. 

IS