Búdrýgindi boða til málþings um nýsköpun og framtíðarsýn í sveitum.
Dagskrá á vegum Búdrýginda í Ársal Landbúnaðarháskólans á Hvanneyri, laugardaginn 8. mars 2014, klukkan 13 – 16.
Framsögumenn:
- Vilhjálmur Egilsson rektor á Bifröst | Ávinningur af nýjum námskeiðum í matvælarekstrarfræði á Bifröst.
- Dominique Pledel Jónsson, Slow Food Reykjavík | Slow food – íslenskar sveitir og samfélag.
- Brynhildur Pálsdóttir hönnuður, Fundur bænda og hönnuða og Vík-Prjónsdóttir | Gildi hönnunar við vöruþróun og markaðssetningu
- Gunnþórunn Einarsdóttir, Matís | Nýsköpun í matvælaframleiðslu – Nú er tækifæri til að koma hugmyndum í verk!
- Arnheiður Hjörleifsdóttir, Bjarteyjarsandi | Sjálfbær fortíð og fókus til framtíðar
- Davíð Freyr Jónsson, Arctic Seafood | Arctic Seafood og eldhússmiðja í Borgarbyggð
- Guðrún Bjarnadóttir, meistaranemi við LBHÍ eigandi Hespu | Hespuhúsið – grasnytjar, ullarhandverk og fræðsla
Dagskrárstjóri er Kolfinna Jóhannesdóttir skólameistari Menntaskólans í Borgarnesi.
Málþingið er opið öllum og vonast er til þess að sem flestir bændur sjái sér fært að mæta og allir áhugamenn um afurðaframleiðslu í sveitum. Einnig þeir sem hafa áhuga á byggðamálum almennt.
Fyrirlestrarnir verða nokkuð stuttir og skorinortir, en fyrirlesararnir segja frá möguleikunum sem þeim sýnist framtíðin bera í skauti og standa vonir til að frjóar umræður skapist í kjölfar erindanna.
ALLIR VELKOMNIR !
Nánari upplýsingar má finna á Facebook síðu viðburðarins.