Í síðustu viku var haldinn fundur í Kaupmannahöfn um möguleika á nýtingu þangs og þara í mat, innan verkefnisins Nýr norrænn matur. Matþörungar er vannýtt auðlind hér á norðurslóðum og miklir möguleikar í þróun nýrra matvæla úr þangi og þara.
Á meðal þátttakenda voru matreiðslumeistarar, vísindamenn, þangræktendur og framleiðendur frá Íslandi, Færeyjum, Grænlandi, Danmörku, Noregi og Svíþjóð. Nánari upplýsingar um fundinn má finna á heimasíðu Ny Nordisk Mad (sjá hér).
Nánari upplýsingar veitir Rósa Jónsdóttir hjá Matís.