Matís óskar eftir að ráða drífandi og duglegan sérfræðing til starfa hjá fyrirtækinu í Reykjavík
Starfssvið
Starfið felst í umsjón með rannsóknum og efnagreiningum í matvælum og ýmsum öðrum efnarannsóknum sem gerðar eru hjá fyrirtækinu.
Hæfniskröfur
- M.Sc. eða Ph.D. í efnafræði eða skyldum greinum.
- Æskilegt er að umsækjendur hafi starfsreynslu við rannsóknir með gas-massagreini eða vökvamassagreini
- Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
- Lipurð í mannlegum samskiptum
- Metnaður til að ná árangri í starfi
Umsóknir ásamt upplýsingum um menntun og starfsreynslu, auk meðmæla, skal senda til Matís ohf., Vínlandsleið 12, 113 Reykjavík eða á netfangið atvinna@matis.is, merkt “Sérfræðingur – efnagreiningar”.
Umsóknarfrestur er til og með 27. júní nk.
Æskilegt er að viðkomandi geti hað störf sem fyrst.
Nánari upplýsingar veitir Helga Gunnlaugsdóttir, helga.gunnlaugsdottir(at)matis.is, og í síma 422-5000.
Nánari upplýsingar um Matís má finna hér.