Morgunverðarfundur hjá Matís fim. 14. apríl kl. 08:30 um líftækni og tengdar greinar og framtíðarmöguleika okkar í þessum arðbæra iðnaði.
Mikill uppgangur er í líftækni og tengdum greinum á Íslandi og vilja margir meina að vaxtarbroddar framtíðarinnar liggi þar. Matís er í góðum tengslum við líftækniiðnaðinn og eru t.a.m. mörg verkefna Matís unnin í samstarfi við fyrirtæki þar.
Nú er góður tími til að kynna stöðu mála, framtíðarsýn og afrakstur síðustu ára. Á fundinum verða erindi frá fyrirtækjum ásamt erindum frá Matís og HÍ. Fyrirtæki munu einnig kynna starfsemi sína þennan morgun.
Í kjölfar fundarins verður gestum boðið að skoða húsnæði að Vínlandsleið 14 en þar hafa nokkur fyrirtæki, sem eru í nánu samstarfi við Matís, komið sér fyrir og verður um formlega opnun að ræða á þeim hluta hússins þennan dag.
Dagskrá
08:30 Setning – Orri Hauksson, Samtök Iðnaðarins
08:40 Er líftækniiðnaðurinn vaxtabroddur Íslendinga? – Hörður G. Kristinsson, Matís
08:45 Ensím og orka úr hveraörverum – Jakob Kristjánsson, Prokazyme
09:00 Orka og efnasmíði með hjálp hitakærra örvera – Guðmundur Óli Hreggviðsson, Matís
09:10 Hvers vegna fá fiskar ekki fótasár? – Guðmundur Guðmundsson, Kerecis
09:25 Ensím úr þorski í náttúruvörur, snyrtivörur og lyf – Bjarki Stefánsson, Ensímtækni
09:40 Sameindaræktun og afurðir hennar – Júlíus B. Kristinsson, ORF Genetics
09:55 Efnaauðlegð íslenskrar náttúru – Sesselja Ómarsdóttir, Lyfjafræði Háskóla Íslands
10:10 Kítósan – Nýsköpun og vaxtamöguleikar til framtíðar – Einar Matthíasson, Primex
10:20 Ævintýramarkaðssetning: ull, fiskur og fæðubótarefni – Þráinn Þorvaldsson, Saga Medica
10:35 Umræður
10:45 Fundarslit og formleg opnun Vínlandsleiðar 14 – Friðrik Friðriksson, stjórnarformaður Matís
Fundarstjóri: Hörður G. Kristinsson, rannsóknastjóri Matís.
Þórir Bergsson, meistarakokkur Matís, býður fundargestum upp á frábæran morgunmat kl. 08:15.
Fundurinn er öllum opinn en vinsamlegast láttu okkur vita hvort þú mætir með því senda okkur línu á liftaeknifundur@matis.is
Auglýsingu um fundinn má finna hér.