MATVÍS stendur fyrir málþingi um mat í skólamötuneytum, 6. apríl kl. 15:00 að Stórhöfða 31, gengið inn að neðanverðu.
MATVÍS stendur fyrir opnu málþingi fagmanna og framleiðanda um þá gagnrýni sem hefur komið fram á mat í mötuneytum skólanna. Þar eru ásakanir um að fóður sé borið á borð en ekki fæða.
Til þess að fara yfir þessi mál hefur MATVÍS boðið eftirtöldum aðilum að gera grein fyrir sínum sjónarmiðum með framsögu og sitja síðan í pallborði.
Dagskrá
Setning: Níels S. Olgeirsson formaður MATVÍS.
Framsögur
- Grímur Þór Gíslason hjá Grímur kokkur. Innihald og næringargildi þeirra vöru sem hann selur til mötuneyta og annarra.
- Eðvald S Valgarðsson frá Kjarnafæði. Stefna Kjarnafæðis hvað varðar söltun, reykingu og aukefni í þeirra afurðum.
- Ólafur Reykdal frá Matís. Yfirlit um niðurstöður rannsókna á næringargildi brauð- og kjötvara.
- Hólmfríður Þorgeirsdóttir hjá Lýðheilsustöð. Ráðleggingar Lýðheilsustöðvar um matarframboð í skólum byggt á handbók fyrir skólamötuneyti
- J. Trausti Magnússon matreiðslumeistari í grunnskóla.Fer yfir hvernig hann velur sína birgja og á hvað hann leggur áherslu á við innkaup á matvöru.
- Pallborðsumræður.
Fundarstjóri
Ólafur Jónsson hjá Iðunni fræðslusetri