Erfðaauðlindir íslenskra ferskvatnsfiska – verðmæti og hættur. Málþing Erfðanefndar landbúnaðarins í tilefni af ári líffræðilegrar fjölbreytni fer fram í Þjóðminjasafni Íslands frá kl. 13-16, föstudaginn 26. nóv. nk.
Fundarstjóri: Skúli Skúlason Rektor Háskólans á Hólum
Dagskrá
13:00-13:05 Skúli Skúlason rektor Háskólans á Hólum, Setning málþings
13:05-13:25 Áslaug Helgadóttir, prófessor við LbhÍ Gildi erfðaauðlinda í landbúnaði nýting þeirra og varðveisla.
13:25-13:45 Kristinn Ólafsson, MATÍS/Veiðimálastofnun Stofngerðir íslenska laxins.
13:45-14:05 Leó Alexander Guðmundsson, Veiðimálastofnun Erfðabreytileiki laxins í Elliðaánum í tíma og rúmi.
14:05-14:25 Bjarni Kr. Kristjánsson, Háskólinn á Hólum Fjölbreytileiki bleikju.
14:30-16:00 Pallborðs umræður
Markmið málþingsins er að kynna nýjustu þekkingu á erfðum íslenskra laxfiska með hliðsjón af veiðinýtingu og umgengni við auðlindina.
Allir velkomnir, aðgangur ókeypis.