Fréttir

Gagnleg gerjun matvæla

Þjónustuflokkur:

Aðrir þjónustuflokkar

Föstudaginn 22. október kl. 12.00 heldur Shuji Yoshikawa fyrirlestur um gerjun matvæla í Verinu á Sauðárkróki.

Matís vinnur nú að verkefninu “Gagnleg gerjun” í samstarfi við Brimberg ehf. fiskvinnslu á Seyðisfirði sem styrkt er af AVS – Rannsóknarsjóði í sjávarútvegi (www.avs.is) og Vaxtarsamningi Austurlands.

Verkefnið snýst um framleiðslu fiskisósu með gerjun sjávarfangs til verðmætaaukningar. Í sambandi við umrætt verkefni hefur Líftæknismiðja Matís á Sauðárkróki hýst góðan gest nú í október, Hr. Shuji Yoshikawa er sérfræðingur á sviði gerjunar matvæla. Hr. Yoshikawa hefur leiðbeint sérfræðingum Matís og öðrum samstarfsaðilum verkefnisins við innleiðingu þekkingar, sem er grundvöllur framfara á þessu sviði.

Af því tilefni fær gesturinn góði að láta ljós sitt skína á málstofu í Verinu Vísindagörðum þar sem fjallað verður um  hagnýtingu gerjunar við framleiðslu matvæla. Sojasósu sem margir Íslendingar þekkja, enda hefur neysla hennar hér á landi aukist á undanförnum árum, er framleidd með gerjun sojabauna. Farið verður yfir helstu atriði í framleiðslu sojasósu
en áður verður hlutverk koji við gerjun japanskra matvæla útskýrt.

Málstofan er öllum opin. Nánar hér.

Upplýsingar gefur Gísli Svan Einarsson gisli@veridehf.is S; 455-7930

Verið Vísindagarðar, Háeyri 1, Sauðárkróki. www.veridehf.is

IS