Matís, Nofima, Háskólinn í Tromsö og Havstovan í Færeyjum standa fyrir vinnufundi um línuveiðar 19. og 20. október næstkomandi hér á Íslandi.
Á vinnufundinum verður hugað að virðiskeðju línufisks með tilliti til veiða, vinnslu, markaðssetningar, gæða og umhverfisáhrifa. Á fundinum munu sérfræðingar á þessum sviðum halda framsögu og á eftir fara fram umræður með þátttakendum. Þess er vænst að fundurinn muni leiða saman þá er koma að virðiskeðju línufisks á Norðurlöndunum og muni greiða fyrir samstarfi þeirra á milli í komandi framtíð.
Vinnufundurinn verður haldinn að Gullhömrum, Þjóðhildarstíg 12, 113 Reykjavík
Þátttaka er öllum heimil og gjaldfrjáls.
Dagskrá vinnufundarins má sjá hér.
Allar nánari upplýsingar veitir Jónas Rúnar Viðarsson jonas.r.vidarsson@matis.is