Á morgun, þriðjudaginn 18. maí n.k. verður hér á landi Brent Richards. Brent er arkitekt og hönnuður sem hefur lengi unnið að matarhönnun.
Hann stýrði í mörg ár DesignLab við Central Saint Martin School of Design í London. Nú er Brent framkvæmdastjóri The Design Embassy Europe. Hann hefur mikil alþjóðleg tengsl bæði í hönnunarheiminum, matarmenningu og nýjungum í mat og upplifun. Brent er mjög áhugasamur um stöðu mála hér á okkar svæði og kemur hingað með stelpunum í “Björg-í-bú” sem vinna nú að verkefni um framleiðslu á sjávarsöltuðum kartöfluflögum úr Ríki Vatnajökuls.
Hann mun halda fyrirlestur um nýsköpun í smáframleiðslu matvæla og tengingu við svæðisbundna menningu. Titill fyrirlestursins er : FOOD NARRATIVE – CONNECTION WITH CULTURAL AND REGIONAL IDENITY.
Fyrirlesturinn hefst kl 1220 og verður í fyrirlestrarsal Nýheima á Höfn
Í framhaldi af fyrirlestrinum verður Brent svo með stutt „workshop“ þar sem hann mun vinna með áhugasömum að skilgreiningu tækifæra í Ríki Vatnajökuls.
Við hvetjum að sjálfsögðu alla til að mæta.