Starfssvið verkefnastjóra verður að byggja upp þróunarsetur fyrir smáframleiðslu matvæla í húsnæði Mjólkurstöðvarinnar á Egilsstöðum í þeim tilgangi að efla smáframleiðslu, vöruþróun og rannsóknir á afurðum úr landbúnaði og öðrum matvælaiðnaði.
Starfs- og ábyrgðasvið
- að stjórna rekstri Matvælamiðstöðvar Austurlands
- að vinna með smáframleiðendum á Austurlandi að útfærslu hugmynda að staðbundnum matvælum
- að vinna með öðrum sérfræðingum Matís að skilgreiningu og öflun rannsóknaverkefna
- að taka þátt í kennslu, fræðslu og skipulagningu námskeiða sem tengjast staðbundinni matvælaframleiðslu.
Ráðningartími er til eins árs. Staðan verður endurmetin að þeim tíma liðnum.
Hæfniskröfur
Háskólamenntun og/eða starfsreynsla sem nýtist í starfinu. Reynsla af vöruþróun. Frumkvæði, sjálfstæði og vandvirkni í vinnubrögðum. Lipurð í mannlegum samskiptum og metnaður til að ná árangri í starfi.
Starfstöð Matvælamiðstöðvar Austurlands er staðsett á Egilsstöðum og því er nauðsynlegt að viðkomandi starfsmaður verði búsettur á Austurlandi.
Nánari upplýsingar veitir
Guðjón Þorkelsson í síma 422 5000. Umsóknir með upplýsingum um menntun og starfsreynslu, auk meðmæla skal senda til: Matís ohf., Borgartúni 21, 105 Reykjavík eða til jon.h.arnarson@matis.is.
Umsóknarfrestur er til og með 15. júlí nk.
Matvælamiðstöð Austurlands er samstarfsverkefni Þróunarfélags Austurlands, Búnaðarsambands Austurlands, mjólkurframleiðenda á Héraði, sveitafélagsins Fljótsdalshéraðs, Auðhumlu/MS og Matís ohf. um að byggja upp þróunarsetur fyrir smáframleiðslu matvæla í rými Mjólkurstöðvarinnar á Egilsstöðum.
Matís er þekkingarfyrirtæki sem sérhæfir sig í mat og líftækni. Hjá Matís starfa tæplega 100 manns á níu stöðum á landinu. Hlutverk Matís er að efla samkeppnishæfni íslenskra afurða og atvinnulífs, bæta lýðheilsu og tryggja matvælaöryggi og sjálfbæra nýtingu umhverfisins með rannsóknum, nýsköpun og þjónustu.
Auglýsinguna á pfd formi má finna hér.
Nánari upplýsingar um starfsemi Matís og atvinnutækifæri hjá fyrirtækinu veitir Jón H. Arnarson, jon.h.arnarson@matis.is.