Matís auglýsir eftir verkefnastjóra á svið fiskeldis á starfstöð fyrirtækisins á Ísafirði. Auglýsing þess efnis birtist í Morgunblaðinu, Fréttablaðinu og Bæjarins besta á Ísafirði.
Starfssvið: Að efla starfsemi Matís á sviði fiskeldis og þróa ný atvinnutækifæri.
Í starfinu felst m.a:
- Þróun á eldistækni
- Hönnun og þróun á vinnsluferlum
- Efling verkefna hjá Matís á Vestfjörðum í tengslum við atvinnulífið
Hæfniskröfur:
- Háskólamenntun í raunvísindum s.s. verkfræði eða tæknifræði; framhaldsmenntun er kostur
- Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
- Lipurð í mannlegum samskiptum
- Metnaður til að ná árangri í starfi
Umsóknir með upplýsingum um menntun og starfsreynslu, auk meðmæla, skal senda til Matís ohf., Borgartúni 21, 105 Reykjavík, eða á netfangið atvinna()matis.is.
Umsóknarfrestur er til og með 23. desember nk. Viðkomandi þarf að geta hafið störf í janúar 2009.
Nánari upplýsingar um verkefnin veitir Jón H. Arnarson, mannauðsstjóri, jon.h.arnason@matis.is, og í síma 422-5000.