Fyrstu vikuna í maí fór fram fyrsti aðalfundur Evrópuverkefnisins MeCCAM á Ródos í Grikklandi. Þar komu saman allir þátttakendur verkefnisins, alls 15 samstarfsaðilar og nær verkefnið til sex hafsvæða. Markmið verkefnisins er að þróa mótvægis og aðlögunaraðgerðir gagnvart áhrifum loftslagsbreytinga fyrir sjávarútvegsfyrirtæki, yfirvöld og aðra hagsmunaaðila í Evrópskum sjávarútvegi.
Fundurinn stóð yfir í þrjá daga og var farið yfir stöðu og framgang verkefnisins, þátttakendur fræddust um stöðu sjávarútvegs á Grikklandi og farið var í skoðunarferð um eyjuna. Það sem stóð uppúr var grillveisla í boði heimamanna þar sem á boðstólnum voru nýjar og framandi tegundir.
Eitt þeirra vandamála sem grískur sjávarútvegur stendur frammi fyrir vegna loftslagsbreytinga er innkoma nýrra tegunda sem eiga sér engar afætur í hinu hefðbundna gríska vistkerfi og teljast því ágengar. Ein möguleg lausn er að bjóða ferðamönnum upp á veiðiferðir þar sem þessar tegundir eru veiddar og matreiddar. Fjórði dagurinn var svo valkvæmur, en þá var einmitt boðið upp á slíka veiðiferð og þó að aflinn væri ekki upp á marga fiska, þá skemmtu þátttakendur sér vel.
Við kunnum gestgjöfum okkar í Grikklandi bestu þekkir fyrir hlýjar móttökur og vel heppnaðan fund.



Verkefnið er til fjögurra ára og er styrkt af Horizon áætlun Evrópusambandsins.

