Sérfræðingar Matís voru áberandi á Sjávarútvegsráðstefnunni sem haldin var í Hörpu dagana 5.–6. nóvember síðastliðinn. Erindi þeirra endurspegluðu fjölbreytta starfsemi Matís og það mikilvæga hlutverk sem rannsóknir, nýsköpun og samstarf gegna í þróun íslensks sjávarútvegs.
Guðrún Svana Hilmarsdóttir fjallaði um hvernig rannsóknir og nýsköpun geta skapað ný verðmæti og stuðlað að vexti í sjávarútvegi í erindi sínu „Að stækka kökuna – Rannsóknir sem drifkraftur nýrra verðmæta“. Hildur Inga Sveinsdóttir beindi sjónum að mikilvægi samstarfs, stöðu þess í dag og tækifærum til frekari þróunar. Sigurjón Arason velti upp spurningum um hvar verðmætin í sjávarauðlindinni liggja og hvernig auka megi verðmætasköpun með vinnslu og betri nýtingu aflans hér á landi.

Stefán Þór Eysteinsson fjallaði um samspil sjávarútvegs og samfélags, meðal annars tengsl atvinnugreinarinnar við byggðaþróun. Sæmundur Elíasson beindi sjónum að vannýttum tækifærum í nýtingu kolmunna til manneldis og möguleikum á aukinni verðmætasköpun úr þeirri auðlind.
Sjávarspendýr og áhrif þeirra á vistkerfi og fiskveiðar
Jónas R. Viðarsson, sviðsstjóri rannsókna og nýsköpunar hjá Matís, hafði umsjón með sérstakri málstofu Matís á ráðstefnunni undir yfirskriftinni „Sjávarspendýr og áhrif þeirra á nytjastofna og fiskveiðar“.
Daginn fyrir ráðstefnuna stóð Jónas jafnframt fyrir vel heppnuðum vinnufundi hjá Matís undir yfirskriftinni „Hvalveiðar eða ekki hvalveiðar – er nauðsynlegt að skjóta þá?“. Frekari upplýsingar um vinnufundinn má finna hér.

