Matís leitar að metnaðarfullum sérfræðingi til að sinna fjölbreyttum verkefnum á sviði umhverfisvöktunar.
Starfið felur í sér umsjón og framkvæmd umhverfisvöktunarverkefna fyrir iðnaðarsvæði á Íslandi, ásamt öðrum tilfallandi verkefnum. Auk þátttöku í gæðateymi sem vinnur að uppsetningu og vottun gæðakerfis samkvæmt alþjóðlegum stöðlum. Starfið býður upp á fjölbreytt verkefni, faglegar áskoranir og sveigjanlegan vinnutíma.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Umsjón með umhverfisvöktunarverkefnum auk annara tilfallandi verkefna.
- Framkvæmd verkþátta í umhverfisvöktunarverkefnum.
- Þátttaka í gæðateymi og áframhaldandi uppbygging og vottun gæðakerfis.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Háskólamenntun í verkfræði, efnafræði eða skyldum greinum er skilyrði.
- Framhaldspróf í ofangreindum fögum er kostur.
- Reynsla af meðferð, úrvinnslu og framsetningu gagna er skilyrði.
- Reynsla af umhverfisvöktun eða mengunareftirliti er kostur.
- Reynsla af vinnu við vottað gæðakerfi er kostur, þá sérstaklega ISO/IEC 17025.
- Góð almenn íslensku- og enskukunnátta í ræðu og riti.
- Góð almenn tölvukunnátta.
Við leitum að aðila sem býr yfir
- Góðri samskipta- og samstarfshæfni.
- Sjálfstæðum, skipulögðum og nákvæmum vinnubrögðum.
- Jákvæðu viðmóti, frumkvæði og faglegum metnaði.
Starfshlutfall er 100% og viðkomandi mun starfa á starfsstöð Matís við Vínlandsleið 12.
Matís er leiðandi í þjónustu og rannsóknum á sviði matvælafræði og líftækni. Hlutverk Matís er að efla samkeppnishæfni íslenskra afurða og atvinnulífs og tryggja matvælaöryggi, lýðheilsu og sjálfbæra nýtingu auðlinda. Hjá Matís starfar um 90 manna öflugur hópur fólks sem vinnur að rannsóknum, nýsköpun og þjónustu í nánu samstarfi við atvinnulíf, stjórnvöld og vísindasamfélagið.
Umsóknum skal fylgja ítarleg ferilskrá og kynningarbréf.
Umsóknarfrestur er til og með 26.07.2026
Upplýsingar veitir Kristmann Gíslason fagstjóri umhverfis og loftgæða, kristmann.g@matis.is, 422 5000.

