Dr. Johan Robbens frá ILVO-Marine í Belgíu verður aðalfyrirlesari á WEFTA 2026, sem haldin verður í Reykjavík 12-16. október næstkomandi.
Fyrirlestur hans ber heitið “Algae and the Challenges for Food” og fjallar um tækifæri og áskoranir við notkun þörunga sem hráefni matvæli framtíðarinnar. Þörungar innihalda fjölbreytt verðmæt efni, meðal annars prótein, fitu og bragðefni, en nýting þeirra í matvælum krefst vandaðrar nálgunar hvað varðar gæði, skynræna eiginleika, matvælaöryggi, vinnslu og regluverk.
Í fyrirlestrinum verður bragð notað sem rauður þráður. Fjallað verður um hvernig efnafræðilegar mælingar og skynmat geta stutt við val á tegundum, vinnslu og vöruþróun. Einnig verður lögð áhersla á að hráefni úr þörungum þurfi alltaf að meta í samhengi við lokaafurðina, þar sem efnilegir eiginleikar lífmassa skila sér ekki alltaf beint í matvöru sem neytendur vilja kaupa og borða.
Dr. Robbens leiðir rannsóknarhóp á sviði sjávarlíftækni hjá ILVO-Marine. Rannsóknir hans snúa meðal annars að þörungum til matvæla og fóðurs, sjávarlíftækni, nýtingu sjávarauðlinda og hliðarstrauma, matvælaöryggi og hraðvirkum greiningaraðferðum.
Allar nánari upplýsingar og skráningu á WEFTA 2026 má finna hér.

