Rannsóknarstofur Matís hljóta tilnefningu sem opinberar rannsóknarstofur

Sólveig Rán Stefánsdóttir

Gæðastjóri

solveig@matis.is

Rannsóknarstofur Matís í örverumælingum og efnamælingum í Reykjavík, ásamt rannsóknarstofunni í Neskaupstað, hlutu í sumar tilnefningu sem opinberar rannsóknarstofur gagnvart Matvælastofnun (OR).

Tilnefningin felur í sér að Matís er sá aðili gagnvart íslenska ríkinu sem tekur við og sinnir tilteknum greiningum vegna opinbers eftirlits á matvælum og fóðri. Þar undir fellur einnig neysluvatn, sem samkvæmt regluverkinu telst til matvæla. Tilnefningin er í samræmi við 1. mgr. 37. gr. reglugerðar Evrópusambandsins nr. 2017/625.

Tilnefningin nær til greininga á:

  • Varnarefnaleifum sem greinast yfir hámarksgildum í reglugerðum
  • Sýni sem reynast innihalda sjúkdómsvaldandi örverur skv reglugerð um tilkynningaskylda sjúkdómsvalda
  • Sýni af neysluvatni sem uppfylla ekki kröfur úr reglugerð um neysluvatn
  • Vörur frá þriðja landi sem uppfylla ekki kröfur ESB

Tilnefningin er mikilvæg viðurkenning á sérþekkingu, hæfni og faglegu starfi Matís. Hún er jafnframt sterk traustsyfirlýsing og staðfesting á því að hjá Matís séu til staðar nauðsynlegir innviðir og sérhæfður mannauður til að takast á við krefjandi og flókin verkefni á sviði matvælaöryggis. Þar má sérstaklega nefna öfluga þekkingu og getu til að framkvæma bæði örverugreiningar og efnamælingar hratt, örugglega og í samræmi við ströngustu kröfur.

Skrunaðu efst