Rannsóknarstofur Matís í örverumælingum og efnamælingum í Reykjavík, ásamt rannsóknarstofunni í Neskaupstað, hlutu í sumar tilnefningu sem opinberar rannsóknarstofur gagnvart Matvælastofnun (OR).
Tilnefningin felur í sér að Matís er sá aðili gagnvart íslenska ríkinu sem tekur við og sinnir tilteknum greiningum vegna opinbers eftirlits á matvælum og fóðri. Þar undir fellur einnig neysluvatn, sem samkvæmt regluverkinu telst til matvæla. Tilnefningin er í samræmi við 1. mgr. 37. gr. reglugerðar Evrópusambandsins nr. 2017/625.
Tilnefningin nær til greininga á:
- Varnarefnaleifum sem greinast yfir hámarksgildum í reglugerðum
- Sýni sem reynast innihalda sjúkdómsvaldandi örverur skv reglugerð um tilkynningaskylda sjúkdómsvalda
- Sýni af neysluvatni sem uppfylla ekki kröfur úr reglugerð um neysluvatn
- Vörur frá þriðja landi sem uppfylla ekki kröfur ESB
Tilnefningin er mikilvæg viðurkenning á sérþekkingu, hæfni og faglegu starfi Matís. Hún er jafnframt sterk traustsyfirlýsing og staðfesting á því að hjá Matís séu til staðar nauðsynlegir innviðir og sérhæfður mannauður til að takast á við krefjandi og flókin verkefni á sviði matvælaöryggis. Þar má sérstaklega nefna öfluga þekkingu og getu til að framkvæma bæði örverugreiningar og chemical measurements hratt, örugglega og í samræmi við ströngustu kröfur.



