Taktu þátt í viðburði EIT Food North-West sem haldinn verður þann 3.-5. október næstkomandi. Áherslan er á þekkingarmiðlun og öflun tengslanets. Viðburðurinn er fyrir matvælaiðnaðinn, tækniaðila og vöruframleiðendur.




Afhverju að mæta?
- Til að afla þér þekkingar á breskum matvælaiðnaði.
- Til að tengjast sérfræðingum í iðnaðinum sem hafa mikilvæg sambönd við tæknisetur og markaðinn.
- Til að heyra frá aðilum í Bretlandi og á Íslandi sem starfa í matvælaiðnaði og hafa hafa vaxið á árangursríkan hátt.
Viðburðurinn fer fram 3.-5. október:
Mánudaginn 3. október | Hvað vilja kaupendur og smásalar? Smásölumarkaðurinn í Bretlandi. Matís, Reykjavík |
Þriðjudaginn 4. október | Bláa hagkerfi Íslands og 100% fiskur Iceland Ocean Cluster, Reykjavík |
Miðvikudaginn 5. október | Kynning á stýrðu umhverfi í landbúnaðarframleiðslu Orkídea, Selfossi |
Komdu og vertu með! Dagskrá Matís og EIT Food, mánudaginn 3. október finnur þú hér:
09:00 | Opnun, Oddur M. Gunnarsson Forstjóri Matís |
Neytandinn, eftirspurn og markaðurinn í Bretlandi | |
Tengslamyndun og miðlun – speed networking – session I | |
Erindi Mackies, alþjóðlegi smáframleiðandinn – ís beint frá býli | |
12:15 | Hádegishlé – tengslamyndun og miðlun |
13:15 | Ör erindi; Food Innovation Wales, Schottish Rural Agricultural College, National Manufacturing Institute and Strathclyde |
Tækifærin; erindi EIT Food/EEN | |
Tengslamyndun og miðlun – speed networking – Session II | |
16:30 | Samantekt og dagskrárlok |
Þáttaka er frí en skráning er nauðsynleg með því að smella á skráningarhnappinn hér að neðan:
Allar nánari upplýsingar finnur þú með því að smella hér
Hefur þú fyrirspurn varðandi viðburðinn? Anna Berg Samúelsdóttir, sérfræðingur hjá Matís svarar öllum fyrirspurnum í netfang annab@matis.is