Hvalveiðar eða ekki hvalveiðar – er nauðsynlegt að skjóta þá?

Hvalveiðar eða ekki hvalveiðar hafa verið þrætuepli hér á landi í áratugi. En hvað vitum við raunverulega um fjölda hvala í Norður-Atlantshafi og áhrif þeirra á vistkerfið? eða nytjastofna? eða á fiskveiðar yfir höfuð?

Leitast verður við að svara þessum spurningum á vinnufundi sem fer fram í Matís á miðvikudaginn 4 nóvember, en þar munu vísindamenn frá Kanada, Íslandi, Færeyjum, Danmörku og Noregi kynna nýjustu gögn um útbreiðslu og áhrif sjávarspendýra á vistkerfi og fiskveiðar.

Þá munu hagaðilar sem eru með og á móti veiðum á sjávarspendýrum kynna sín rök. Búist er við líflegum umræðum. Aðgangur er ókeypis og frekari upplýsingar um viðburðinn má nálgast hér

Vinsamlegast skráið ykkur með því að senda tölvupóst á jonas@matis.is

Á fimmtudaginn 5 nóvember munu svo sömu aðilar verða með málstofu á Sjávarútvegsráðstefnunni. Dagskráin þar verður nokkuð þéttari þar sem ekki verður hægt að gefa jafn góðan tíma til umræðna. Sá viðburður fer fram í RÍMU í Hörpu og er hluti af Sjávarútvegsráðstefnunni, og er því einungis aðgengileg þeim sem skráðir eru á ráðstefnuna (skráning fyrir SÚR fer fram á https://sjavarutvegsradstefnan.is/).

Dagskráin báða daga fer fram á ensku.

Skrunaðu efst