Fréttir

Fóður eða fæða? Matís tekur þátt í málþingi Matvís um mat í skólamötuneytum

Þjónustuflokkur:

Aðrir þjónustuflokkar

MATVÍS stendur fyrir málþingi um mat í skólamötuneytum, 6. apríl kl. 15:00 að Stórhöfða 31, gengið inn að neðanverðu.

MATVÍS stendur fyrir opnu málþingi fagmanna og framleiðanda um þá gagnrýni sem hefur komið fram á mat í mötuneytum skólanna.  Þar eru ásakanir um að fóður sé borið á borð en ekki fæða.

Til þess að fara yfir þessi mál hefur MATVÍS boðið eftirtöldum aðilum að gera grein fyrir sínum sjónarmiðum með framsögu og sitja síðan í pallborði.

Dagskrá
Setning: Níels S. Olgeirsson formaður MATVÍS.

Framsögur

  • Grímur Þór Gíslason hjá Grímur kokkur. Innihald og næringargildi þeirra vöru sem hann selur til mötuneyta og annarra.
  • Eðvald S Valgarðsson frá Kjarnafæði. Stefna Kjarnafæðis hvað varðar söltun, reykingu og aukefni í þeirra afurðum.
  • Ólafur Reykdal frá Matís. Yfirlit um niðurstöður rannsókna á næringargildi brauð- og kjötvara.
  • Hólmfríður Þorgeirsdóttir  hjá Lýðheilsustöð. Ráðleggingar Lýðheilsustöðvar um matarframboð í skólum byggt á  handbók fyrir skólamötuneyti
  • J. Trausti Magnússon matreiðslumeistari í grunnskóla.Fer yfir hvernig hann velur sína birgja og á hvað hann leggur áherslu á við innkaup á matvöru.
  • Pallborðsumræður.

Fundarstjóri
Ólafur Jónsson hjá Iðunni fræðslusetri