Fréttir

Fundur á Sauðárkróki: Glærur komnar á vefinn

Þjónustuflokkur:

Aðrir þjónustuflokkar

Fimmtudaginn 5. janúar var haldinn fjölmennur fundur í Verinu, nýju Þróunarsetri Hólaskóla, sem staðsett er á Háeyri 1 við höfnina á Sauðárkróki. Tilefni fundarins var að kynna 6 milljón króna styrk sem sjávarútvegs- og iðnaðarráðuneytin hafa veitt til að styrkja rannsóknir á sviði fiskeldis, vinnslu sjávarafla og matvælavinnslu á Sauðárkróki og við Hólaskóla.

Í frétt í Morgunblaðinu s.l. laugardag er haft eftir Einari Guðfinnssyni, sjávarútvegsráðherra að “framtíðin sé björt í Skagafirði og Þróunarsetrið á örugglega eftir að geta af sér merkar rannsóknar og uppgötvanir íslenskum sjávarútvegi til hagsbóta.”

Rf starfrækti um langt skeið fjögur útbú á landsbyggðinni og hefur því lengi lagt áherslu á að efla rannsóknir sínar á landsbyggðinni. Þá hefur Rf í seinni tíð lagt aukna áherslu á að efla samstarf við æðri menntastofnanir hvar sem er á landinu.

Í gildi er samstarfssamningur milli Rf og Hólaskóla um rannsóknir og er starfsmaður Rf t.a.m. í hlutastarfi við kennslu í skólanum.  Ljóst er að fjárstyrkur ráðuneytanna mun styðja verulega við uppbyggingu Rf í Skagafirði.  Í frétt Mbl. segir að fyrirhugað sé að styrkja samstarfið enn frekar með sérstökum samstarfssamningi um rannsóknir og þróun á sviði fiskeldis, náttúruvísinda og matvælavinnslu, þar sem gert er ráð fyrir að Háskóli Íslands og Háskólinn á Akureyri eigi aðild að samningi þessum auk, Auk Rf, Hólaskóla og FISK Seafood.  

Hér má nálgast nokkrar glærur sem fyrirlesarar á fundinum studdust við, en dagskrá fundarins var eftirfarandi:

1. Ávarp – Einar K. Guðfinnsson, Sjávarútvegsráðherra

2.  AVS Rannsóknasjóðurinn – Friðrik Friðriksson

3.  Rf á Norðurlandi – Sjöfn Sigurgísladóttir Rf

4.  Samstarf  FISK hf. við skóla og rannsóknastofnanir – Jón Eðvald Friðriksson, framkvæmdastjóri

5.  Fiskeldi og rannsóknir hjá Hólaskóla – Helgi Thorarensen, Hólaskóla

6.  Fóður og eldi – Rannveig Björnsdóttir Rf og Háskólinn á Akureyri

7.  Prótein úr sjávarfangi og endurnýting vatns í fiskeldi – Ragnar Jóhannsson, Rf og Hólaskóla

8.  Samstarf og uppbygging á Sauðárkróki, Skúli Skúlason – rektor Hólaskóla