FarFish verkefnið stendur fyrir röð fyrirlestra um fiskveiðistjórnun og nýsköpun (marine management and innovation) dagana 9-13 mars.
Í FarFish verkefninu er sjónum beint að veiðum fiskveiðiflota Evrópusambandsins á alþjóðlegum hafsvæðum og innan lögsögu þriðja heims ríkja sem gert hafa samninga um aðgang að fiskveiðiauðlindum sínum. Mikilvægur hluti í verkefninu snýr að kennslu og miðlun þekkingar til hagaðila, hvort sem er meðal útgerðarmanna í Evrópu eða fulltrúa strandríkja sem Evrópusambandið hefur samið við. Einn partur af þeirri kennslu og þekkingarmiðlun er í formi námskeiðs sem Háskólinn í Tromsö skipuleggur. Matís bíður þeim sem áhuga hafa á, að sitja einstaka fyrirlestra í námskeiðinu. Streymt verður frá fyrirlestrunum inn í kennslustofu á Matís og í framhaldi verða umræður sem stýrt er af starfsmönnum Matís sem taka þátt í FarFish verkefninu.
Streymi á fyrirlestrana má nálgast hér.
Eftirfarandi fyrirlestrar eru í boði:
Mánudagur 9. Mars
8:15-9:00 Welcome and introduction to the course
9:15-10:00 Fisheries management and international law
12:15-13:00 International legal framework related to fisheries management
13:15-14:00 Data flows between fleets and administrations
Þriðjudagur 10. Mars
8:15-9:00 Control in practice: Use of Vessel Monitoring System VMS / Automatic Identification System AIS
9:15-10:00 Marine Protected Areas MPAs/ Vulnerable Marine Ecosystems VMEs: what, how and why?
12:15-15:00 Fisheries economy
Miðvikudagur 11. Mars
8:15-10:00 Supply chains and value chain
Fimmtudagur 12. Mars
8:15-10:00 Information logistics and traceability
12:15-13:00 Quality and processing
13:15-14:00 Food safety
Föstudagur 13. Mars
8:15-10:00 Fishing vessel economics
Þeir sem áhuga hafa á að sækja einstaka fyrirlestra eru beðnir um að skrá sig minnst sólahring áður en fyrirlestur hefst, með því að senda tölvupóst á jonas@matis.is.