Matís, Nýsköpunarmiðstöð Íslands, Háskóli Íslands og Samtök iðnaðarins halda opið málþing um íslenskan matvælaiðnað, umhverfismál og vistvæna nýsköpun, laugardaginn 20. apríl kl. 13-17 í Háskólatorgi Háskóla Íslands.
Á málþinginu verður fjallað um græna hagkerfið og stefnu stjórnvalda í þeim málum. Sagt verður frá Evrópuverkefnunum Ecotrofoods (www.ecotrophelia.eu) og Converge (www.convergeproject.org) og hvernig staðið er að því að minnka umhverfisáhrif í matvælaiðnaði á Íslandi. Þá verður efnt til sýningar og kynningar á verkefnum nemenda í vistvænni nýsköpun matvæla og afhent verðlaun fyrir besta verkefnið.
Dagskrá viðburðarins í heild er eftirfarandi:
13.00-15.00 Málþing
13.00-17.00 Sýning
15.00-16.00 Verðlaunaafhending í keppni nemenda um vistvæna nýsköpun matvæla
Dagskrá málþings:
13.00-13.20 Græna hagkerfið og íslensk matvælaframleiðsla. Skúli Helgason, formaður nefndar um eflingu græns hagkerfis á Íslandi.
13.20-13.40 Umhverfismál og íslenskur matvælaiðnaður. Bryndís Skúladóttir, forstöðumaður umhverfismála hjá Samtökum iðnaðarins
13.40-14.00 Verðmætasköpun og áskoranir í umhverfismálum, Sveinn Margeirsson, forstjóri Matís
14.00-14.20 Vistvæn nýsköpun matvæla. Fanney Frisbæk, verkefnisstjóri, Efnis-, líf-, og orkutækni, Nýsköpunarmiðstöð Íslands
14.20-14.40 Hvernig er hægt að tryggja fæðuöryggi á Íslandi? Kristín Vala Ragnarsdóttir, prófessor við Jarðvísindadeild Háskóla Íslands
14.40-15.00 Umræður
Fundarstjóri: Guðjón Þorkelsson, sviðsstjóri, Matís og dósent í matvælafræði við Háskóla Íslands, sem veitir nánari upplýsingar (858-5044).