Þann 14. nóvember síðastliðinn úrskurðaði EFTA dómstóllinn að íslenskum yfirvöldum væri óheimilt að banna innflutning á fersku kjöti og eggjum og afurðum úr ógerilsneyddri mjólk frá Evrópu til Íslands. Ljóst er að þessi dómur mun hafa veruleg áhrif á íslenskan landbúnað.
Landbúnaðarháskóli Íslands (Lbhí) og Bændasamtök Íslands (BÍ) bjóða til opins fundar á Hvanneyri föstudaginn 24. nóvember kl. 14:00 – 16:30 í Ásgarði.
Mikilvægt er að umræða um þetta mál byggist á faglegum grunni. Því boða LbhÍ og BÍ til opins fundar til að fjalla um niðurstöður dómsins og hugsanleg áhrif hans. Fundurinn er öllum opinn á meðan húsrúm leyfir. Boðið verður upp á kaffi í fundarhléi.
Hvernig viltu hafa kjötið þitt?
Opinn fundur Lbhí og BÍ á Hvanneyri í tilefni af dómi EFTA dómstólsins um innflutning á fersku kjöti og eggjum og afurðum úr ógerilsneyddri mjólk.
- 14:00 – 14:10 Setning – Sæmundur Sveinsson rektor LbhÍ
- 14:10 – 14:30 Innflutningur á ferskum landbúnaðarafurðum til Íslands – staðan og horfur – Sigurður Eyþórsson, framkvæmdastjóri BÍ
- 14:30 – 14:50 Innflutningseftirlit – hlutverk MAST og mismunur á eftirliti eftir uppruna innflutnings – Þorvaldur H. Þórðarson, framkvæmdastjóri inn- og útflutningsmála hjá Matvælastofnun
- 14:50 – 15:10 Kaffihlé
- 15:10 – 15:30 Smitsjúkdómar sem geta borist með innfluttum ferskum landbúnaðarafurðum – Vilhjálmur Svansson dýralæknir, Tilraunastöð Háskóla Íslands í meinafræðum á Keldum
- 15:30 – 15:50 Lýðheilsa – áhrif á heilbrigði manna og dýra – Karl G. Kristinsson yfirlæknir Sýklafræðideildar Landspítalans
- 15:50 – 16:30 Umræður og fyrirspurnir
Nánari upplýsingar má fá hjá Lbhí.