Auglýst eftir hugmyndum að nýsköpun í matvælaframleiðslu. Ísland fer með formennsku í norræna ráðherraráðinu á þessu ári og leggur áherslu á nýsköpun í hinu norrænna lífhagkerfi til þess að styrkja svæðisbundinn hagvöxt.
Matís mun leiða nýsköpunar- og vöruþróunarverkefni sem unnin verða á þessu sviði næstu þrjú árin. Um er að ræða verkefni sem snúa að nýsköpun í matvælaframleiðslu, aukinni sjálfbærni í matvælaframleiðslu og aukinni framleiðslu lífmassa.
Fyrsti hluti vöruþróunarverkefnanna er nú að fara í gang og auglýsir Matís því eftir hugmyndum frá áhugasömum aðilum um vöruþróunarverkefni hér heima og í nágrannalöndunum. Markmiðið í þessum fyrsta hluta er að þróa matvörur eða matvælatengdar vörur, með það að markmiði að frumgerðir þeirra liggi fyrir í júní 2014.
Hægt er að sækja um þátttöku í verkefninu á Google Docs til 13. mars 2014.
Um er að ræða sérfræðiaðstoð við vöruþróun á matvöru, aðstoð við nauðsynlegar mælingar og/eða uppsetningu gæðakerfis við framleiðslu. Mögulegt er að nýta framleiðsluaðstöðu í matarsmiðjum Matís sem staðsettar eru í Reykjavík, Höfn og á Flúðum. Ekki verður greitt fyrir eigin vinnu umsækjanda, hráefni eða tækjakaup. Gert er ráð fyrir að vöruþróun hefjist í mars og verði lokið um mánaðarmót maí/júní 2014.
Nánari upplýsingar veita Gunnþórunn Einarsdóttir og Ingunn Jónsdóttir hjá Matís.