Matvælaþing verður haldið í Hörpu miðvikudaginn 15. nóvember en hringrásarhagkerfið, í samhengi við nýsamþykkta matvælastefnu til ársins 2040, er meginviðfangsefni þingsins sem er nú haldið í annað sinn.
Tveir fulltrúar frá Matís eru á mælendaskrá, þau Eva Margrét Jónudóttir, verkefnastjóri og Birgir Örn Smárason, fagstjóri faghópsins sjálfbærni og eldi.
Eva Margrét verður einn fjögurra þátttakenda í pallborðsumræðum sem bera yfirskriftina Leynast lausnir í leifunum? Nýting hráefna – engu hent. Hún mun til dæmis ræða um það hvaða tækifæri eru í aukinni nýtingu, hvaða auðlindastrauma mætti nýta betur, hver staðan er í dag og hverjar framtíðarhorfurnar eru. Gestir þingsins munu geta sent inn spurningar sem pallborðsþátttakendur ræða.
Birgir Örn mun flytja erindið Hvað er í matinn árið 2050? – framtíð matvælaframleiðslu. Þar mun hann meðal annars fjalla um þann mat sem verður borðaður árið 2050, breytingarnar sem matvælakerfin munu að öllum líkindum ganga í gegnum á næstu áratugum og ástæður þess að matvælakerfi þurfa að breytast.
![](https://matis.is/wp-content/uploads/Eva_Margret_Jonudottir_svhv_MG_4670-739x1024.jpg)
![](https://matis.is/wp-content/uploads/Birgir_Orn_Smarason_svhv-739x1024.jpg)
Nánari upplýsingar um viðburðinn og skráning hér: Matvælaþing 2023