27. janúar sl. var haldinn góður fundur í höfuðstöðvum Matís að Vínlandsleið 12 í Reykjavík. Þar komu saman margir af helstu sérfræðingum Norðurlandanna um síld og síldarstofna Norður-Atlantshafsins.
Fundurinn var hluti af verkefninu HerMix sem styrkt er af Ag-Fisk sjóðnum. Þátttakendur í verkefninu eru frá 7 stöðum.
- Matís (Icelandic Food and Biothech R&D), Reykjavík, Iceland
 - Marine Research Institute (MRI), Reykjavík, Iceland
 - Faroese Fisheries Laboratory (FFL), Torshavn, Faroe Islands
 - University of the Faroe Islands (UFI), Torshavn, Faroe Islands
 - Institute of Marine Research (IMR), Bergen, Norway
 - Sildarvinnslan hf (SVN), Neskaupstaður, Iceland
 - The National Institute of Aquatic Resources (DTU-Aqua), Lyngby, Denmark
 
Markmið verkefnisins er að geta aðgreint síldastofna í Norður-Atlandshafi með erfðafræðilegum aðferðum og kanna breytileika í efna- og vinnslueiginleikum afurðarinnar.
Nánari upplýsingar veitir Sigríður Hjörleifsdóttir, sigridur.hjorleifsdottir@matis.is.
Nánari upplýsingar um verkefnið má finna hér.
