Þann 5. febrúar síðastliðinn var gefin út sérstök stefnulýsing, eða vegvísir, fyrir rannsóknir á örveruflóru Atlantshafsins. AORA (Atlantic Ocean Research Alliance) stendur fyrir þessari útgáfu, en það eru samtök um hafrannsóknir í Atlantshafi sem Bandaríkin, Kanada og Evrópusambandið eru aðilar að.
Markmið AORA er að hlúa að heilbrigði og varðveislu Atlantshafs og jafnframt að velferð, farsæld og öryggi komandi kynslóða. AORA samstarfið er leitt af Fisheries and Oceans Canada, Directorate General Research and Innovation hjá framkvæmdastjórn Evrópusambandsins og National Oceanic and Atmospheric Administration í Bandaríkjunum.
Í stefnulýsingu AORA segir að örverflóra hafsins gegni lykilhlutverki fyrir samfélag manna; fyrir heilsu, fæðu, iðnað og vistkerfi. Því sé mikilvægt að vísindasamfélagið, iðnaðurinn og stefnumótendur stilli saman strengi sína í því að hlúa að hafinu og rannsaka betur eiginleika örveruflórunnar og möguleg tækifæri sem hún hefur upp á að bjóða. Matís tók þátt í setja saman stefnulýsingu AORA.
Frekari upplýsingar um AORA samtökin má finna hér og sérstakt kynningarmyndband um vegvísinn má finna hér að neðan: