Matís er nú að hefja námskeiðaröð um fagleg vinnubrögð við smáframleiðslu matvæla. Matís hefur á síðustu árum unnið að eflingu nýsköpunar í smáframleiðslu matvæla með uppsetningu á matarsmiðjum á Hornafirði og Flúðum og með verkefninu Matvælamiðstöð Austurlands.
Í matarsmiðju er boðið upp á löggilda aðstöðu til framleiðslu matvæla með frumkvöðlastuðningi, kennslu og ráðgjöf frá sérfræðingum Matís. Þannig hefur tekist að auka verulega framleiðslu einstaklinga og minni fyrirtækja á matvælum, oft úr staðbundnu hráefni.
Eftirfarandi námskeið verða haldin vorið 2011:
Dagsetning | Námskeið | Staður | Tími | Leiðbeinendur |
29. apríl, fös | Þurrkun matvæla | Flúðir | 13-17 | Irek, Vilberg |
4. maí, fim | Þurrkun matvæla | Hallormsstaður | 13-17 | Irek, Þórarinn |
5. maí, fim | Reyking matvæla | Vopnafjörður | 11-17 | Óli Þór, Þórarinn |
13. maí, fös | Sultun, súrsun og niðurlagning matvæla | Höfn | 10-16 | Irek, Vigfús |
14. maí, lau | Reyking matvæla | Flúðir | 9-15 | Óli Þór, Vilberg |
20. maí, fös | Þurrkun matvæla | Höfn | 9-15 | Irek, Vigfús |
Farið verður yfir öll meginatriði varðandi vinnslu og meðhöndlun vörunnar, allt þar til hún er komin á borð neytenda. Hvernig og hvað þarf til að framleiða hana (þ.á.m. hráefni, tækjabúnaður, aðstaða), kostir og gallar mismunandi aðferða, hættur sem ber að varast, mat á gæðum ofl. Kennslan verður bæði bókleg og verkleg.
Verð á námskeiði er 15.000 krónur.
Skráning og frekari upplýsingar fást hjá:
Höfn: Vigfús Ásbjörnsson s. 858-5136, vigfus@matis.is
Flúðir: Vilberg Tryggvason s. 858-5133, vilberg@matis.is
Egilsstaðir/Hallormsstaður/Vopnafjörður: Þórarinn E. Sveinsson s. 858-5060, thorarinn@matis.is
Starfsmenntasjóðir endurgreiða kostnað vegna námskeiðahalds til einstaklinga og fyrirtækja allt að 75%. Sjá nánari upplýsingar um starfsmenntasjóði og úthlutunarreglur á: www.starfsafl.is, www.landsmennt.is, www.starfsmennt.is