Fréttir

Opið málþing um Campy-on-Ice verkefnið og baráttuna gegn kampýlóbakter

Þjónustuflokkur:

Aðrir þjónustuflokkar

Opið málþing um Campy-on-Ice verkefnið og baráttuna gegn kampýlóbakter verður haldið fimmtudaginn 27. maí kl. 9-13 í höfuðstöðvum Matís að Vínlandsleið 12 í Reykjavík.
Á málþinginu verður fjallað um þær aðgerðir sem gripið var til í kjölfar kampýlóbakterfaraldursins í fólki árið 1999 og þann árangur sem náðist með þessum aðgerðum.

Þegar sala á ferskum kjúklingi var heimiluð á Íslandi árið 1996 jókst neysla kjúklingakjöts verulega.  Þremur árum seinna varð sprenging í fjölda kampýlóbakter-tilfella í fólki. Gripið var til víðtækra aðgerða til að sporna við þessari þróun.

Mikilvægasta aðgerðin var og er enn, að frysta alla kjúklinga sem eru kampýlóbaktersmitaðir fyrir slátrun. Sýni eru tekin úr öllum kjúklingahópum fáum dögum fyrir slátrun. Ef þeir reynast smitaðir eru kjúklingarnir frystir en frysting fækkar fjölda baktería þannig að minni líkur eru á að fólk smitist við neyslu.

„Campy-On-Ice“ rannsóknin sem hófst fyrir um 10 árum var viðamikið samstarfsverkefni Kanada, Bandaríkjanna og Íslands,  en Matvælastofnun, Matís, Keldur, Landlæknisembættið og Sýkladeild Landspítalans voru fulltrúar landsins í þessari rannsókn. Rannsóknirnar voru margþættar og niðurstöðurnar eftir því fjölbreyttar. Á málþinginu verður farið yfir helstu niðurstöður, sem nýttust í smitvörnum og bættu árangur við að verjast smiti í fugla og fólk.

Í kjölfar „Campy-On-Ice“ verkefnisins varð til annað verkefni sem nefnt hefur verið „Fly netting Project“, sem hófst 2008. Það felst í að klæða loftræstistrompa alifuglahúsa með flugnanetum, en flugur eru alþekktir smitberar. Á málþinginu verður einnig farið yfir þessa rannsókn og niðurstöður kynntar, sem þegar hafa vakið athygli erlendis.

Málþinginu lýkur með hádegisveislu í boði kjúklingaframleiðenda til heiðurs Ruff Lowman fyrir sitt ómetanlega framlag til verkefnisins. Málþingið fer fram á íslensku og ensku og verður dagskrá sem hér segir:

    09:00 – 09:10    Setning
    09:10 – 09:25    Saga kampýlóbakter á Íslandi í 10 ár – Sigurborg Daðadóttir
    09:25 – 09:40    Kampýlóbakter sýkingar og faraldsfræði í mönnum
                                       – Hjördís Harðardóttir og Guðrún Sigmundsdóttir
    09:40 – 10:00    „Campy-On-Ice“ hagnýt not fyrir alifuglaframleiðendur – Jarle Reiersen
    10:00 – 10:15    Kaffihlé
    10:15 – 12:00    „Campy-On-Ice“ Kanada – „Fly netting“ – Ruff Lowman
    12:00 – 13:00    Veisla til heiðurs Ruff Lowman

Málþingið verður haldið í nýjum húsakynnum Matís að Vínlandsleið 12, 113 Reykjavík á 3. hæð fimmtudaginn 27. maí og hefst kl. 9:00.

Nánari upplýsingar veitir Hjalti Andrason hjá Matvælastofnun, hjalti.andrason@mast.is.

IS