Matvælastofnun heldur fund um eftirlitskerfi stofnunarinnar kl. 9-12 föstudaginn 17. mars í Reykjavík. Fundurinn er öllum opinn en er sérstaklega ætlaður matvælaframleiðendum sem stofnunin hefur eftirlit með, bændum sem og fyrirtækjum, til að fara yfir framkvæmd eftirlits, eftirfylgni og birtingu niðurstaðna úr eftirliti.
Á fundinum verður fjallað um uppbyggingu og nýlegar breytingar á skoðunarhandbókum Matvælastofnunar og áhættuflokkun fyrirtækja. Farið verður yfir forsendur og framkvæmd eftirlits og frammistöðuflokkun Matvælastofnunar á fyrirtækjum út frá niðurstöðum eftirlits. Verklag stofnunarinnar við beitingu þvingunar- og refsiúrræða verður kynnt, ásamt upplýsingagjöf út á við um niðurstöður eftirlits og aðgerðir Matvælastofnunar.
Dagskrá
09:00 – 10:00 Skoðunarhandbækur Matvælastofnunar – Jón Ágúst Gunnlaugsson, MAST
10:00 – 10:25 Áhættuflokkun fyrirtækja – Jónína Stefánsdóttir, MAST
10:25 – 10:40 Hlé
10:40 – 10:55 Frammistöðumat á fyrirtækjum – Jón Ágúst Gunnlaugsson, MAST
10:55 – 11:40 Eftirfylgni og beiting þvingunar- og refsiúrræða – Ástfríður Sigurðardóttir, MAST
11:40 – 12:00 Birting á niðurstöðum eftirlits – Jón Ágúst Gunnlaugsson, MAST
Fundargestum gefst kostur á að koma spurningum sínum á framfæri og taka þátt í umræðum. Þátttakendur þurfa ekki að skrá sig og er þátttakan þeim að kostnaðarlausu.
Fundurinn er föstudaginn 17. mars kl. 9:00 – 12:00 hjá Markaðsstofu Matvælastofnunar að Stórhöfða 23. Gengið er inn í húsnæði stofnunarinnar að norðanverðu (Grafarvogsmegin). Nánari upplýsingar má fnna á vef Matvælastofnunar.
Ítarefni: Ekki ruglast! Matís er ekki Matvís sem er ekki MAST…..