Samstarfssamningur Matís og ALS í Svíþjóð

Hrólfur Sigurðsson

Sérfræðingur

hrolfur@matis.is

Í fyrra gerði Matís samstarfssaming við rannsóknastofu ALS Scandinavia í Svíþjóð. ALS er alþjóðlegt fyrirtæki með 340 rannsóknastofur út um allan heim.  Þeir rannsaka m.a. umhverfissýni, matvæli og sýni frá lyfjaiðnaðinum.

ALS í Svíþjóð var stofnað 2006 og hefur Matís notið þeirra þjónustu frá upphafi stofnunar Matís ohf árið 2007.  Í upphafi voru send neysluvatnssýni í viðtækar efnamælingar sem ekki er möguleiki á að rannsaka hér á landi.  Á seinni árum hefur umfang umhverfismælinga aukist mikið.  Efnamælingar á frárennsli, sigvatni frá sorphaugum og jarðvegssýnum rannsökuð með tilliti til mengunar. Þeir hafa t.d. rannsakað fyrir okkur asbest í neysluvatni, byggingarefni og jarðvegssýnum.

Með tilkomu samstarfssamningsins hefur Matís komið sér upp lager af sýnatökubúnaði fyrir hinar ýmsu rannsóknir.  Sýnatökubúnaður fer eftir því sem á að rannsaka og fyrir sumar mælingar þarf að bæta við efnum svo mælingin verði áreiðanlegri þrátt fyrir flutning til Svíþjóðar.  Starfsfólk Matís sér um að pakka sýnum og útbúa sýnatökuglös fyrir sýnatöku.

Þær mælingar sem ALS framkvæmir er að finna á heimasíðu þeirra https://www.alsglobal.se/en.

Frekari upplýsingar veitir Hrólfur Sigurðsson, hrolfur@matis.is.

Scroll to Top