Á vormánuðum var bókin Magnetic Resonance in Food Science, Challenges in a Changing World gefin út í kjölfar vel heppnaðar ráðstefnu sem Matís hélt í Norræna húsinu dagana 15.-17. september 2008 um notkunarmöguleika kjarnaspunatækni (Magnetic Resonance) í matvælaframleiðslu og matvælarannsóknum.
Meginmál
Bókinni er ritstýrt af Maríu Guðjósdóttur, verkefnastjóra og doktorsnema hjá Matís, ásamt Professor Peter Belton við Háskólann í East Anglia og Graham Webb frá Royal Society of Chemistry. Bókin er gefin út af Royal Society of Chemistry í Bretlandi. Ráðstefnuna sóttu 80 þátttakendur hvaðanæva að úr heiminum og kynntu þar rannsóknaniðurstöður sínar. Þar af voru 32 verkefni kynnt í fyrirlestrum og 32 sem veggspjöld. Bókin sem nú er komin út samanstendur af 29 greinum þessara vísindamanna og flokkast greinarnar í fjóra kafla; New Techniques; Food Systems and Processing; ESR and other Techniques; Fish and Meat. Fyrir áhugasama má nálgast bókina hjá Matís með því að senda tölvupóst til Maríu Guðjónsdóttur (mariag@matis.is) eða panta í síma 422 5091.
Ráðstefnan var níunda ráðstefnan í ráðstefnuröðinni International Conference on the Applications of Magnetic Resonance in Food Science, en ráðstefnurnar eru haldnar annað hvert ár. Næsta ráðstefna verður haldin haustið 2010 í Clermont í Frakklandi á vegum L‘Institut National de la Recherche Agronomique (INRA) í Frakklandi.