Fréttir

Þaramajónesið Fjaran sigrar í EcoTrophelia Ísland

Þjónustuflokkur:

Aðrir þjónustuflokkar

Ragnheiður Elín Árnadóttir, iðnaðar- og viðskiptaráðherra var rétt í þessu að veita verðlaun í keppninni EcoTrophelia Ísland sem Matís, ásamt Nýsköpunarmiðstöð Íslands, Háskóla Íslands og fjölmörgum stofnunum heima og erlendis standa að. Verðlaunin voru afhent á Nýsköpunartorgi Samtaka iðnaðarins sem haldið er í dag og á morgun í Háskólanum í Reykjavík.

EcoTrophelia Ísland er hluti af alþjóðlegri keppni og er vöruþróunarkeppni meðal háskólanemenda sem felst í því að þróa vistvæna matvöru. Markmið keppninnar er að minnka umhverfisáhrif frá íslenskri matvælaframleiðslu með því að skapa nýjar vistvænar mat- og drykkjarvörur. Þar er m.a. um að ræða notkun vannýttra hráefna, notkun nýrra og umhverfisvænna framleiðsluaðferða, umbúða eða flutningsmáta. Að keppninni standa Nýsköpunarmiðstoð Íslands, Matís og Samtök iðnaðarins í samstarfi við íslenska háskóla.

Tvö lið kepptu til úrslita í ár. Annað liðið skipa þær Brynja Einarsdóttir, Guðjóna Björk Þorbjarnardóttir og Hrefna Lind Einarsdóttir og voru þær með vöruna BEjuicy sem er frostþurrkaður grænmetissafi á duftformi. Hitt liðið skipa Christopher Melin og Páll Arnar Hauksson með vöruna Fjöru sem er þaramajónes. Svo fór að þaramajónes var valið sigurvegari Ecotrophelia Ísland að þessu sinni.


Ragnheiður Elín Árnadóttir, iðnaðar- og viðskiptaráðherra, afhendir EcoTrophelia Ísland 2014 verðlaunin.

Fjaran majónesið er skemmtileg nýjung á matvælamarkaði. Majónesið er unnið úr íslensku þangi og er þangið sólþurrkað á íslensku hrauni. Varan hentar grænmetisætum (e. vegans) jafnt sem öðrum sem áhuga hafa á því að bæta hollustuefnum í mataræði sitt. Nánari upplýsingar má finna á heimasíðu vörunnar, http://www.p.is/fjara/.

Nánari upplýsingar veitir Ragnheiður Héðinsdóttir, forstöðumaður matvælasviðs hjá Samtökum iðnaðarins og Guðjón Þorkelsson, sviðsstjóri hjá Matís.

Hefur þú áhuga á því að búa til vöru? Matarsmiðjur Matís eru kjörin vettvangur.