Matís hefur stofnað nýjan faghóp, Umhverfi og loftgæði, á þjónustusviði. Hópnum er ætlað að sinna þjónustu fyrir iðnað á Íslandi í tengslum við umhverfisvöktun og starfsleyfisskyldar mælingar og hefur Matís ráðið til sín sérfræðinga með langa reynslu á þessu sviði.
Þjónustunni er skipt í þrjú áherslusvið:
- Sýnataka, umsjón og ráðgjöf í tengslum við umhverfisvöktun og mengunarmælingar
- Útblásturs- og loftgæðamælingar
- Rekstur, þjónustu og viðhald sjálfvirkra loftgæðamælitækja
Hópurinn vinnur náið með faggildri efnagreiningastofu Matís (efnamælingar) og ALS Scandinavia sem Matís er umboðsaðili fyrir á Íslandi og er markmiðið að bjóða uppá heildstæða þjónustu á sviði mengunarmælinga fyrir iðnað á landinu.
Fagstjóri hópsins er Kristmann Gíslason.

