Upphafsfundur NGSN- Nordic Gastronomy and Sensory Network for Protein Transition fór fram 21. apríl 2026 í Helsinki þar sem verkefnið var formlega sett af stað.
NGSN er stýrt er af Háskólanum í Helskinki og er norrænt samstarfsverkefni sem hefur það að markmiði að styrkja tengsl milli matargerðarlistar, skynmatsvísinda og sjálfbærra matvælakerfa. Matís er þátttakandi í verkefninu, ásamt Finnum, Svíum, Dönum og Norðmönnum. Verkefnið byggir á þeirri sýn að breytingar í átt að sjálfbærari próteingjöfum þurfi ekki aðeins að byggjast á næringarfræði og umhverfissjónarmiðum, heldur einnig á bragði, upplifun og ánægju neytenda.

Á fundinum var farið yfir verkefnið og meginmarkmið verkefnisins og verkáætlun, samstarfsaðilar og þátttakendur kynntir. Ræddar voru sameiginlegar áherslur og hvernig best væri að tryggja árangursríka framkvæmd verkefnisins á komandi misserum. Fundinum lauk með samantekt og umræðum um framtíðarsýn verkefnisins, þar sem lögð var áhersla á öflugt norrænt samstarf, nýsköpun og sjálfbærni í þróun matvælakerfa.
Lykilþáttur upphafsfundarins var vinnustofa þar sem þátttakendur, um 15 sérfræðingar frá norrænum löndum á sviði skynmats, matargerðalistar, næringar- og matvælafræði, tækni og fleiri greinum greindu áskoranir tengdar aukinni áherslu á sjálfbærari próteingjafa og mögulegar lausnir því tengdar.

Meðal þeirra áskorana sem komu fram voru skynrænar hindranir, svo sem mismunandi væntingar og smekkur, hátt verðlag, menningarbundin viðhorf og rangfærslur á samfélagsmiðlum. Sem lausnir voru nefndar aukin fræðsla um matvæli, stærra hlutverk matargerðar og matargerðalistar, sem og endurskoðun stefnumótunar.

Áherslusvið NGSN-verkefnisins í tengslum við próteinskipti og sjálfbær matvælakerfi. Verkefnið er styrkt af Nordic Council of Ministers og The Nordic Joint Committee for Agricultural and Food Research.

Nordic Council of Ministers, The Nordic Joint Committee for Agricultural and Food Research

