Verkefni á Rf kynnt á Norrænum Næringarráðgjafadögum

Dagana 9. – 12. ágúst var haldin norræn ráðstefna hér á landi á vegum Nordisk Dietistförening, en það eru samtök norrænna næringarfræðinga/ráðgjafa. Á meðal fyrirlesara á ráðstefnunni var Emilía Martinsdóttir, deildarstjóri á Rf.  

Emilía kynnti verkefnið Viðhorf og fiskneysla ungs fólks: Bætt ímynd sjávarafurða, sem hófst árið 2005 og áformað er að ljúki árið 2008. Áður hefur verið sagt frá framgangi verkefnisins hér á síðunni, enda einn megintilgangur verkefnisins fræðsla og kynning í þeim tilgangi að auka fiskneyslu, sérstaklega hjá ungu fólki.

Fyrirlestur Emilíu var fluttur á ensku, eins og aðrir fyrirlestrar á ráðstefnunni, og bar yfirskriftina Improved image of seafood. Consumer’s attitudes and fish consumption. Hægt er að lesa fyrirlestur Emilíu, sem og annað efni frá ráðstefnunni, með því að smella hér.

Scroll to Top